fbpx

Einu sinni var tíðin sú að þegar besti vinur, systkini eða börn fluttu til útlanda að maður heyrði í viðkomandi aðilum 1-2 á haustin og jafn oft á vorin. Með tilkomu ýmissa forrita, fyrir bæði snjallsíma og/eða tölvur þá er nú hægt að auka sambandið án þess að borga krónu fyrir (nema þegar forritin eru notuð yfir 3G á síma).

Svo er vitanlega einnig hægt að nota þessi forrit til að tala við vini innanlands ef maður vill minnka símreikninginn til muna. Nú verður farið yfir helstu lausnirnar:

 

Skype

Skype(Windows/Mac/Linux – Android/iOS/Symbian): Flestir Íslendingar sem þekkja einhvern erlendis kannast þá eflaust líka við fjarskiptaforritið Skype. Skype, sem var stofnað 2003, er orðinn nokkurs konar samnefnari fyrir það að tala við einhvern í öðru landi (það „að skype-a“ er búið að festa sig nokkuð í sessi hérlendis, og einnig í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum vestanhafs). Hægt er að fá Skype á öllum helstu stýrikerfum og símtækjum.

 

Kostir:
– Útgáfur til fyrir allar gerðir tölva, og flesta snjallsíma.
– Flestir þekkja Skype, þannig að þú þarft ekki að eyða 5 mínútum í að útskýra hvað Skype sé, eftir að þú bendir fólki á að það geti notað það til að hafa samband við þig.
– Fín gæði á hljóðsímtölum.
Gallar:
– Gæðin á myndsímtölum á Skype eru misjöfn.

 

Viber 

viber(iPhone/Android): Viber er virkilega sniðugt forrit frá Viber Media (sem við höfum áður mælt með), og gerir notendum kleift að hringja og senda skilaboð (bæði texta og myndir) til annarra Viber notenda yfir 3G kerfi eða WiFi. Forritið sker sig úr að því leyti að fólk þarf ekki að skrá notendanafn og lykilorð þegar það skráir sig í Viber, heldur einungis símanúmerið sitt, þannig að símanúmerið manns er í raun notendanafnið. Eftir uppsetningu forritsins, sem er sáraeinföld, er svo hægt að láta skanna símaskrána.

 

Kostir:
– Einfalt í uppsetningu, notar símaskrá notandans til að finna aðra Viber-notendur.
Gallar:
– Misjöfn gæði á símtölum. Okkar reynsla er að þau séu ekkert svakaleg ef báðir aðilar eru að tala saman yfir 3G net.

 

FaceTime

FaceTime(Mac/iOS): Margir sökuðu þá sem kváðust spenntir fyrir FaceTime um að drekka Apple Kool Aid-ið  þegar það var kynnt sem eiginleiki í iPhone 4, þar sem myndsímtöl voru ekki beinlínis ný af nálinni árið 2010 þegar iPhone 4 var gefin út. Apple menn mega þó eiga það, að þeir hafa gert vel með þessu forriti, og talið er víst að vinsældir FaceTime muni eftir að iPad 2 kom út, sem hefur myndavél á framhliðinni líka og gerir FaceTime myndsímtöl þægilegri.

 

Kostir:
– Einfalt og þægilegt í notkun
Gallar:
– Eingöngu fyrir Mac og iOS.

 

Kik Messenger

Kik Messenger(Android/iOS/Windows Phone 7/Blackberry): Sáraeinfalt forrit sem styður einnig sendingu mynda á milli notenda. Hefur þann kost umfram hin forritin að það styður mörg kerfi (raunar öll helstu kerfin í dag nema Symbian, sem er á undanhaldi).
Kostir: 
– Hægt að senda texta og myndir
– Virkar á flestum snjallsímum
Gallar:
– Einungis skilaboð, hvorki hljóð né mynd.

 

Niðurstaða:

Allir hafa sínar óskir um forrit, og það sem hentar einum hentar ekki öðrum. Með því að prófa sig áfram í þessum forritum þá munu notendur eflaust átta sig á því að sum forrit hafa eiginleika sem önnur hafa ekki, sem þeir ýmist elska eða hata. Enn sem komið er þá trónir Skype ennþá á toppnum að okkar mati, þar sem að það er til fyrir öll símkerfi og bæði tölvur og snjallsíma.

Við mælum þó eindregið með því að iOS og Android notendur setji upp Viber, ef ekki nema bara til að minnka símreikninginn og senda skilaboð á vini sem eru hjá öðrum símkerfum í gegnum það.

Avatar photo
Author

3 Comments

  1. Sko, réttara væri að segja að með því að nota eitthvað af þessum téðum forritum þá héldi maður meira sambandi við vini og ættingja erlendis án þess að borga krónu aukalega fyrir.
    Því það kostar all margar krónur fyrir heimili að reka þessa tölvutækni í dag, menn þurfa að fjárfesta í tölvu og borga síðan mánaðarlegt gjald fyrir nettengingu. Með sanni mætti segja að þetta væru með dýrustu símum sem hægt væri að fá en auðvitað er þessi notkun einungis hluti af því sem maður gerir í tölvunni…

    • Ég varmeð Skype á gömlum Nokia síma sem virkaði vel. Símarnir þurfa ekki að kosta milljón. Sumir android símar eru líka alveg mjög ódýrir.

Write A Comment