fbpx

Apple kynnir nýjan iPadEinhverjum lesendum er eflaust kunnugt um að Apple hélt viðburð fyrr í dag, þar sem aðalatriðið var kynning á nýrri iPad spjaldtölvu. iPadinn mun ekki heita iPad 3 eða iPad HD eins og sérfræðingar erlendis spáðu fyrir um, heldur var einfaldlega talað um hann á kynningunni sem „the new iPad“ eða nýja iPadinn.

Helstu nýjungarnar á nýja iPadinum hljóða svo:

Betri skjár. Nýi iPadinn er með 2048×1536 skjáupplausn. Fjórum sinnum fleiri dílar en iPad 2, sem var með 1024×768 skjáupplausn. Stökkið úr iPad 2 yfir í nýja iPad verður því mögulega eins og fyrir nærsýnan mann að fá gleraugu.

Fjögurra-kjarna A5X örgjörvi er á iPadinum, sem skartar að auki fjögurra-kjarna skjáhraðli (e. quad core graphics), en fólk grunar að þetta sé sami skjáhraðallinn og PS Vita leikjatölvan frá Sony notar, sem hefur fengið mikið lof fyrir góða grafík.

Siri. Takmörkuð útgáfa af Siri kemur á iPad sem gerir manni kleift að gera hana að ritara sínum, og auðvelda ritun texta (á þeim tungumálum sem Siri skilur).

Betri myndavél. 5MP myndavél með svokölluðum CMOS nema, sem svipar til myndavélarinnar á iPhone 4S, sem hefur hlotið mikið lof meðal gagnrýnenda.

4G LTE gagnaflutningsnet er í boði, þar sem sú tækni er til staðar, sem styður gagnaflutning allt að 72Mbit/s (u.þ.b. 9MB/s).

Betri rafhlöðuending. Betri í þeim skilningi, að allt ofangreint er frekar orkufrekt, en rafhlaðan hefur sömu endingu og iPad 2.

Avatar photo
Author

Write A Comment