fbpx

I Am T-PainiOS: Þeir sem hafa hlustað á Kanye West (eða hip-hop almennt) undanfarin ár þekkja eflaust Auto-Tune tæknina, en hún lagfærir rödd söngvarans þannig að hún hljómi í réttri tóntegund. Tæknin er þó ekki svo öflug að Auto-Tune sé beitt án ummerkja, en í flestum tilvikum þá fer það ekki á milli mála þegar hlustað er á flutning söngvara hvort Auto-Tune hafi verið beitt eða ekki.

Sumir söngvarar beita Auto-Tune meira en aðrir, og hip-hop listamenn hafa einkum beitt tækninni til skrauts, en ekki til að lagfæra röddina, með sönvarann T-Pain þar fremstan í flokki. T-Pain er raunar orðinn nokkurs konar samheiti yfir Auto-Tune tæknina, sem leiddi til þess að þegar hugbúnaðarfyrirtækið Smule sendi frá sér forritið I Am T-Pain.

I Am T-Pain gerir hverjum sem er að prófa Auto-Tune tæknina.  Forritið kom fyrst út árið 2009 og hefur notið gífurlegra vinsælda alla tíð síðan. Í myndbandinu að neðan má sjá forritið í notkun.

http://youtu.be/-NkBHMl8zI0

I Am T-Pain fæst í App Store og kostar $2.99

Avatar photo
Author

Write A Comment