fbpx

Hitaðu pizzu eins og atvinnumaður [Heimilisráð]

Flestir sem hita sólarhringsgamla pizzu gera það með eftirfarandi aðferð: Setja pizzusneið í örbylgjuofn, smella honum á 30-40 sekúndur og smella á Start. Útkoman er þá sneið sem er mýkri en hágæðabómull.

Ef þú vilt hita pizzuna eins og atvinnumaður, þá skaltu einfaldlega setja pizzuna á stóra pönnu (óþarfi að setja olíu á pönnuna), setja álpappír yfir pizzusneiðina og steikja á miðlungshita í 5 mínútur.

Myndbandið hér að neðan fyrir yfir ferlið.

Nú ætti endirinn á pizzunni að vera stökkur og mun betri fyrir vikið.

Avatar photo
Author

1 Comment

  1. Þetta er góð hugmynd. Verð að prófa þetta. Önnur einfaldari leið er að stinga pizzusneiðinni í brauðristina. Þrælvirkar. Þeir sem eiga „ristavélapoka“ setja sneiðina í pokann og síðan í ristina. Ristavélapokar eru mjög góðir til að útbúa ristaðar samlokur í brauðrist. Ristin þarf reyndar að vera með breiðu „slotti“.

Write A Comment