fbpx

RemoteÍ gær þá kom tímabær uppfærsla af hinu vinsæla Remote forriti fyrir iOS, sem er nú komið í útgáfu 3.0.1.

Með forritinu geta er hægt að stjórna iTunes safni tölvunnar eða Apple TV úr iPhone eða iPad.

Með uppfærslunni þá er leitarmöguleiki kominn í forritið, auk þess sem ýmsar villur voru lagaðar þannig að forritið er nú stöðugra.

remote-app-store

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir helstu möguleika forritsins:

  • Stjórnaðu iTunes og Apple TV hvar sem er á heimilinu
  • Einfalt viðmót til að skoða safnið þitt
  • Sjáðu hvaða lög eru væntanleg í spilun með Up Next
  • Sjáðu öll lög á breiðskífu með Expanded view á iPad
  • Bættu lögum við til að heyra þau næst og haltu svo áfram þar sem frá var horfið
  • Skoðaðu, hlustaðu á og stjórnaðu iTunes Match safninu þínu á Apple TV
  • Pásaðu, spólaðu til baka/áfram og breyttu hljóðstyrknum úr iPhone, iPad eða iPod touch
  • Búðu til og uppfærðu lagalista í iTunes, einnig, Genius lagalista
  • Leitaðu í öllu iTunes safninu þínu
  • Stjórnaðu iTunes og sendu tónlist í AirPlay tengda hátalara
  • Stjórnaðu hljóðstyrk í hverjum hátalara
  • Notaðu einfaldar hreyfingar (e. gestures) til að stjórna Apple TV
  • Ritaðu texta með lyklaborðinu á iOS tækinu þínu

remote-app-store2

Remote forritið er fáanlegt í App Store og er ókeypis.

 

Avatar photo
Author

Write A Comment