fbpx

Facebook - iOSFacebook fyrir iOS fékk uppfærslu í gær, og er nú komið í útgáfu 6.0.

Forritið tekur dálítið mið af Facebook Home viðmótinu sem fyrirtækið kynnti um daginn, en nú geta notendur haft svokallaða Chat Heads sýnilega þegar þeir spjalla við vini sína á Facebook, þannig að minni líkur eru á að einstaklingar gleymi að kveðja áður en þeir skilja við snjallsímann og halda á vit ævintýranna.

Að auki var notendaviðmót forritsins aðeins fínpússað, eins og notendur munu eflaust taka eftir þegar þeir uppfæra forritið.

Facebook 6.0

 

Avatar photo
Author

Write A Comment