Sjáið leiðarvísi að neðan
Skref 1:
Þegar lyklaborðið birtist á skjánum þegar þú ritar texta, ýttu á og haltu lyklaborðshnappinu inni sem er neðst í hægra horninu.
Skref 2:
Þá ættirðu að fá valkostina Undock og Split. Veldu Split
Lyklaborðið þitt ætti núna að líta svona út:
Ath! Ef þú vilt færa lyklaborðið upp eða niður á skjánum, ýttu aftur á og haltu lyklaborðshnappinum inni, og dragðu lyklaborðið upp eða niður eftir hentisemi. Ef þú vilt fá gamla góða lyklaborðið upp, þá ýtirðu einfaldlega aftur á og heldur inni lyklaborðshnappinum, og velur þar „Dock and Merge“.
1 Comment
Reyndar er líka hægt að halda bara með þumlinum niðri (báðum) og draga í sundur. Sama á við þegar þú vilt „Dock-a“. Í stað að draga það í sundur þá dregur þú það saman.