Langar þig í nýjan hringitón en átt ekki neina tónlist á tölvunni? Vefsíða vikunnar, Audiko (sjá fyrri umfjöllun okkar) slær á slíkar áhyggjur.
Á vefsíðunni geturðu búið til hringitón, hvort sem er fyrir iPhone, Android eða aðra síma, út frá öllum myndböndum sem eru inni á myndbandasíðunni YouTube, sem allir þekkja eflaust til.
Helstu kostir Audiko eru eftirfarandi:
- Notendavæn leið til að klippa lag til og búa til hringitón.
- 30 sekúndna hámark á hringitóna (iPhone leyfir ekki lengri hringitóna). Þú lendir því ekki í því að gera óvart gífurlega langan hringitón sem iTunes leyfir þér ekki að nota.
- Notendur geta hlaðið upp eigin lögum frá tölvu eða notað tónlist/hljóð úr YouTube myndböndum.
- Leitaðu og sæktu hringitóna sem aðrir Audiko notendur hafa búið til.
- Hægt er að deila hringitónum þínum með öðrum notendum.
Ef þú ert í vafa um hvernig þetta er gert, þá geturðu skoðað þennan myndræna leiðarvísi sem sýnir hvernig þetta er gert. Við mælum með því að áhugasamir horfi á stærri útgáfu en þessa sem er hér fyrir. Smellið á Full Screen svo það sjáist betur hvernig þetta er gert.
Audiko.net [Vefsíða vikunnar]


![Langar þig að gera hringitón út frá YouTube myndbandi? Audiko er svarið [Vefsíða vikunnar]](https://i0.wp.com/einstein.is/media/2012/12/audiko-150x1501.jpg?resize=150%2C150&ssl=1)
