Forritið sem um ræðir heitir TuneIn Radio, og býður upp á yfir 58.000 þúsund útvarpsstöðvar, sem útskýrir hugsanlega af hverju yfir 30 milljón manns eru með forritið uppsett á tækjum sínum. Með TuneIn geturðu ýmis valið stöðvar eftir staðsetningu, tungumáli, auk þess sem þú getur séð hvaða stöðvar eru vinsælar og nýjar í forritinu.
TuneIn býður líka upp á svokallað Car Mode, og áður en þú hugsar hið augljósa að þú sért með útvarp í bílnum, þá gæti þessi hamur til dæmis hentað Íslendingum erlendis sem vilja hlusta á íslenskar morgunfréttir þegar þeir keyra til vinnu, eða ef einhverjir vilja taka sér pásu frá íslenskum útvarpsstöðvum og hlusta á eitthvað sértækara.
Í eftirfarandi myndbandi má sjá hvernig forritið virkar (og í leiðinni hlusta á ljúfa tóna eftir pólska tónskáldið Frédéric Chopin).
TuneIn Radio er til fyrir iOS (þ.e. iPhone og iPad) og Android. Einnig er hægt að fá TuneIn Radio Pro sem er án auglýsinga og gerir manni kleift að taka upp efni í forritinu til að spila síðar.
1 Comment
Er þetta ekki með mikið niðurhal ??