Streymiþjónustan Spotify hefur notið gífurlegra vinsælda hérlendis síðan fyrirtækið byrjaði að bjóða þjónustu sína opinberlega á Íslandi fyrir rúmu ári.
Það sem mörgum þykir þó nokkuð hvimleitt er að það er ekki hægt að stilla Spotify þannig að forritið sé sjálfvalinn tónlistarspilari í iOS tækjum. Ef þú hefur framkvæmt jailbreak á iOS tækinu þínu, þá er DefaultSpot hentug viðbót sem bjargar því.
Viðbótin stillir Spotify sem sjálfvalinn tónlistarspilara í iOS tækinu, þannig að það verður m.a. þægilegra að spila tónlist beint úr Control Center.
DefaultSpot er fáanleg í Cydia Store, er ókeypis og virkar á iOS 7.


![Láttu Spotify vera sjálfvalinn tónlistarspilara í iOS [Jailbreak] DefaultSpot - Jailbreak](https://i0.wp.com/einstein.is/media/2014/05/defaultspot.png?resize=593%2C504&ssl=1)