Ef þú átt myndarlegt DVD safn sem gerir ekkert nema að safna ryki, þá hefurðu ef til vill velt því fyrir þér hvort það sé ekki hægt að koma þessu myndum á tölvutækt form, svo hægt sé að koma myndunum snyrtilega fyrir í geymslunni.
Hér á eftir ætlum við að benda á nokkrar mismunandi leiðir til að koma DVD myndum (og Blu-ray þegar svo ber undir) yfir á tölvutækt form.
Leið 1: Handbrake
Handbrake er ókeypis forrit fyrir Windows, Mac og Ubuntu (Linux) sem gerir notandanum kleift að afrita DVD mynd yfir á tölvu. Forritið býður upp úrval stillinga, t.d. hvort þú viljir hafa gæðin í einhverju hlutfalli af upprunalegu útgáfunni eða stefna að ákveðinni stærð (t.d. minnka 4,47GB DVD mynd niður í 2GB .mkv skrá).
Með Handbrake geturðu líka afritað hluta myndarinnar, eða einn titil af mörgum (t.d. ef þú ert með marga sjónvarpsþætti á einum disk). Forritinu fylgja svo ýmsar sjálfgefnar stillingar sem hægt er að notast við ef þú vilt horfa á myndirnar þínar í ákveðnu tæki, eins og sjá má eftirfarandi mynd (smellið á myndina til að sjá hana í fullri stærð).
Skref 1: Settu DVD diskinn í og opnaðu Handbrake.
Skref 2: Smelltu á Source, og finndu DVD diskinn þinn í glugganum sem opnast. Þegar þú sérð AUDIO_TS og VIDEO_TS möppurnar þá skaltu smella á Open, en án þess þó að velja þessar möppur.
Skref 3: Forritið skannar diskinn þinn og setur oftast sjálfa myndina í Title (sjá myndina að ofan). Þú ættir að sjá hvort það sé tilfellið ef þú smellir á lengd titilsins og sérð hina titlana.
Skref 4: Veldu stillingar, t.d. Apple TV, í valmyndinni hægra megin, og smelltu síðan á Start. Athugið að ef þú vilt bæta myndinni í iTunes þá þarftu að velja MP4 file í Format reitnum.
Skref 5: Smelltu á Start. Ferlið getur tekið nokkra klukkutíma, þannig að ekki gera ráð fyrir því að þú setjir ferlið í gang, takir einn netrúnt og myndin verði síðan tilbúin.
Notendur geta eins og áður sagði stillt forritið eins og þeir vilja, en ef þú koma DVD safninu þínu yfir í iTunes og skoða í Apple TV, þá er þetta nokkuð einföld leið. Handbrake forritið er ókeypis, þannig að það er lítið mál að prófa forritið og kanna hvort maður nenni að fara í þennan pakka.
Leið 2: RipIt
RipIt er afritunarforrit fyrir Mac sem hefur áður verið til umfjöllunar á síðunni. Eins og fram kom í fyrri umfjöllun þá er lítið um stillingar í RipIt. Forritið nemur sjálfkrafa hvort það sé diskur í geisladirifinu, og síðan er hægt að smella á tvo hnappa í forritinu, Rip eða Compress. Fyrri takkinn (Rip) afritar DVD diskinn eins og hann leggur sig, en sá síðarnefndi ( Compress) breytir efni disksins yfir í .mp4 skrá sem hægt er að spila í öllum iOS tækjum, auk flestra gerða af sjónvarpsflökkurum og öðrum margmiðlunarspilurum.
Ólíkt Handbrake þá er RipIt ekki ókeypis. Forritið fæst á heimasíðu The Little App Factory og kostar $24.95.
Leið 3: MakeMKV
MakeMKV er líkt og Handbrake til fyrir Windows, Mac og Linux, og býður upp á einfalda og þægilega leið til að koma DVD og Blu-ray myndum yfir á hið vinsæla .mkv skráarsnið.
Forritið er í raun jafn einfalt og RipIt, nema það skilar myndinni í öðru skráarsniði (þ.e. .mkv í staðinn fyrir .mp4). Til að nota MakeMKV þá nægir að setja diskinn í og smella á „DVD 2 Disc“ hnappinn. Nýttu svo tímann og keyptu í matinn fyrir vikuna, og myndin ætti að vera tilbúin þegar þú kemur heim (tekur að jafnaði 30-40 mínútur).
MakeMKV er ókeypis og er fáanlegt á opinberri heimasíðu forritsins.
Samantekt – Hvaða forrit er best?
Það er erfitt að segja að eitthvað forrit sé best af þessum þremur. Handbrake er í raun öflugast af þessum þremur forritum, en að sama skapi þá þarf maður að verja meiri tíma í að afrita hverja mynd með Handbrake. RipIt og MakeMKV bjóða upp á minni möguleika, en myndin ætti að vera tilbúin innan klukkustundar.
1 Comment
Handbrake var ágætt forrit á sínum tíma, En ég gafst endanlega upp á því um daginn og fann forrit sem heitir MacX DVD Video Converter. http://www.macxdvd.com Mjög einfalt, fjölhæft og áreiðanlegt.