
Apple leyfði nokkrum af stærstu vefmiðlum Bandaríkjanna að fá forskot á sæluna og skoða 3. kynslóð af iPad fyrir stuttu, en bannaði þeim að birta umfjallanir sínar um iPadin fyrr en í dag. Joshua Topolsky hjá The Verge, dóttursíðu Engadget, leit á gripinn og sagði skoðun sína á honum.
Jason Snell hjá Macworld er einnig búinn að dæma iPadinn. Báðir nefna þeir gæði skjásins, og segja að ekki sé hægt að sjá hversu tær hann sé í raun með því að horfa á myndband. Maður verði að sjá hann með eigin augum.


![Fyrstu iPad dómarnir komnir [Myndband] Apple kynnir nýjan iPad](https://i0.wp.com/einstein.is/media/2012/03/nyr-ipad.jpg?resize=550%2C223&ssl=1)
