Vefur Ríkisútvarpsins hefur fengið uppfærslu (og það nokkur tímabæra) sem auðveldar bæði Mac notendum að horfa á efni af vefnum, auk þess sem eigendur snjallsíma og spjaldtölva geta nú bæði hlustað eða horft á efni af vefnum í tækjum sínum.
Nýi vefurinn ætti líka að kæta eigendur smátækja á borð við iPhone, iPad og Galaxy Tab, en nú er loksins hægt er að hlusta/horfa á efni á vefnum í slíkum tækjum (Einstein getur staðfest að vefurinn virkar í iOS tækjum (t.d. iPhone og iPad) en hefur ekki enn prófað vefinn í öðrum stýrikerfum á borð við Android, en leiða má líkur að því að það virki líka á Android).
Eins og kom fram að ofan þá ættu Mac notendur ekki lengur að lenda í vandræðum með að horfa á efni af vefnum, en þar til nú þá hafa þeir átt erfitt með að horfa á efni af vefnum í Mac OS X stýrikerfinu.
Til að hlusta á eða horfa á efni á RÚV vefnum, farið þá inn á venjulega vefinn (ekki farsímaútgáfu af vefnum) og þaðan í Sarpinn.
Sarpurinn [RÚV]
4 Comments
Og nú er ekki lengur hægt að hlusta á bent útvarp í Firefox.
Jújú, ferð á undirsíðu rásarinnar, t.d. ruv.is/ras1 og þá ætti þessi skjár að blasa við þér, sjá mynd í viðhengi að neðan.
Getur verið að þetta virki ekki fyrir utan landsteinana?
Ég fæ bara svona skilaboð eins og sjást í viðhenginu.
Er ekki hægt að hlaða niður lengur til þess að geyma?
(maður lét efnið bara hlaðast inn og svo „save as quicktime“)Til að hlusta á ruv beint finnst mér langbest að nota TuneIn Radio app fyrir iPhone, ef maður á svoleiðis.
Virkar alls ekki að hlusta beint á Rás 1 eða Rás 2 í Makkanum mínum með Safari (10.6.8 og 5.1.1)