Fyrr í dag kynnti Apple iPhone 7, 7 Plus og Apple Watch 2 á blaðamannafundi í Bill Graham Civic Auditorium í San Francisco.
Hvað er nýtt?
Geymslupláss: Ódýrasta gerðin af iPhone 7 er með 32GB geymsluplássi, þannig að notendur þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af því að síminn tæmist alveg strax. Vilji notendur fá meira pláss á símann þá fæst hann einnig með 128 og 256GB.
Vatns-og rykþolinn: iPhone 7 er vatns- og rykþolinn, og er þetta fyrsta kynslóð af iPhone þar sem þessu er haldið fram. Vatns- og rykvörn símans er sambærileg þeirri sem er á fyrstu kynslóð Apple Watch snjallúrsins, sem Tim Cook segir sjálfur að hann taki með sér í sturtu.
Litir: Nú er hægt að fá símann í fimm litum, þar af tveimur svörtum litum, þ.e. black og jet black (sbr. mynd að ofan). iPhone í jet black er einungis fáanlegur með 128 og 256GB geymsluplássi.
Myndavél: Myndavélin er betrumbætt ár hvert. Báðir símar koma núna með optical image stabilisation, linsu með f/1.8 ljósopi sem bætir myndatöku í lítilli birtu svo um munar. Flassið á myndavélinni er líka talsvert bjartara. iPhone 7 Plus kemur svo með tveimur linsum, wide-angle annars vegar og telephoto hins vegar, þannig að 7 Plus er með 2x optical zoom.
Hljóð: Símarnir koma nú með víðóma (e. stereo) hátölurum, sem eru tvöfalt háværari en iPhone 6s á hæsta styrk, sem ætti að gleðja alla. Það sem vekur þó mesta athygli er að iPhone 7 kemur ekki með neinu heyrnartólatengi.
Með símanum fylgja Apple heyrnartól með Lightning tengi, þannig að ekki er hægt að bæði hlaða símann og hlusta á músík á sama tíma, nema notast sé við þráðlaus heyrnartól (sem Apple kynnti líka). Þó verður hægt að nota hefðbundin heyrnartól áfram þar sem Lightning-í-Jack breytistykki fylgir með símanum, auk þess sem það verður selt í Apple búðum á $9.
Adapter fyrir 3,5mm heyrnartól fylgir með iPhone 7/7 Plus. #AppleIS #AppleKynning pic.twitter.com/f3D4rRslvw
— Einstein.is (@EinsteinIS) September 7, 2016
Hvenær kemur hann í sölu?
Síminn kemur í sölu í tæplega þrjátíu löndum 16. september, m.a. Bretlandi, Bandaríkjunum, Danmörku og Svíþjóð, sem eru allt vinsælir áfangastaðir íslenskra ferðalanga.
Við Íslendingar höfum venjulega þurft að bíða fram í nóvember með að geta keypt símann í íslenskri verslun á opinberu verði. Nú verður breyting á því, þar sem símarnir koma í sölu hérlendis föstudaginn 23. september næstkomandi.
Hér fyrir neðan geturðu séð kynningarmyndband Apple fyrir símann
https://www.youtube.com/watch?time_continue=48&v=Q6dsRpVyyWs