Í dag er svartur föstudagur haldinn „hátíðlegur“ í Bandaríkjunum og víðar. Þetta er alltaf föstudagurinn eftir þakkargjörðarhátíðina vestanhafs, þar sem verslanir keppast um athygli neytenda sem eru reiðubúnir til að verja fé sínu í jólagjafir eða annað góðgæti.
Netverslunar- og tæknirisinn Amazon tekur auðvitað þátt í Black Friday eins og aðrir, og hér getur að líta helstu tilboðin frá fyrirtækinu. Flesta þessa hluti er ekki hægt að panta út fyrir Bandaríkin, þ.a. þú þarft annaðhvort að panta á hótel ef leið þín liggur vestur yfir haf á næstunni eða nota þjónustu á borð við MyUS til að fá vöruna til Íslands.
Þá skulum við kíkja á bestu tilboðin. Ef þú stefnir á að panta marga hluti og ert kannski að fara í ferðalag á næstu dögum þá viltu kannski taka prufutímabil með Amazon Prime. Þá geturðu fengið sendingar afhentar hvert á land sem er í Bandaríkjunum tveimur dögum eftir að þú pantar.
Amazon tæki
Amazon slær talsvert af tækjum sem fyrirtækið framleiðir í dag.
- Önnur kynslóð af Echo hátalaranum vinsæla er á $79.99 í stað $99 eins og venjulega.
- Echo Dot, sem er minni útgáfa af Echo og flestir tengja við Bluetooth hálatara sem þeir eiga fyrir, er á $29.99 (venjulega á $49.99).
- Fire HD 10 spjaldtölvan er á $99.99 í stað $149.99 eins og venjulega. Android spjaldtölva með 10” skjá með 1080p upplausn. Ætti að vera fínn í sjónvarpsáhorf.
- Kindle lesbrettin eru líka á afslætti. Kindle Paperwhite er á $89.99 í stað $119.99 og venjulegur Kindle er á $49.99 í stað $79.99.
Eitt tæki sem er ekki á afslætti, en er hægt að panta til Íslands, er Amazon Fire TV Stick Basic Edition. Það kostar $49.99, þannig að með sendingarkostnaði og virðisaukaskatti þá kostar tækið samt minna en 10 þúsund krónur.
Aðrar vörur
- PlayStation 4 DualShock 4 stýripinni er á $39.99 í stað $59.99 eins og venjulega. Frábær tími til að kaupa auka stýripinna á heimilið.
- Sonos One er á $174 í stað $199.
- Fitbit Charge 2 heilsuúr er á $99 í stað $149.95
Það er hægt að sjá fleiri vörur hér en ofangreindar vörur eru áhugaverðustu tilboðsvörurnar að mínu mati.