Mac: Sumir eru þannig úr garði gerðir að þegar nýtt stýrikerfi kemur út, þá vilja þeir hreinsa öll gögn af gamla stýrikerfinu, og setja nýja kerfið upp, þannig að tölvan sé að vissu leyti eins og hún sé keypt út úr búð. en ekki uppfæra kerfið með öllum gömlu upplýsingunum (þessi uppsetningaraðferð var í boði á Leopard undir valkostinum Erase and Install, en einnig er oft talað um þetta sem clean install utan okkar ástsælu eyju).
Ef þú kýst að fara þessa aðferð þá þarftu að taka afrit af þeim gögnum sem þú vilt eiga á tölvunni þinni áður en lengra er haldið, og fylgja svo leiðarvísinum að neðan til að tölvan þín verði eins og ný. Þetta er líka hentug aðferð ef þú keyptir tölvuna þína notaða, og vilt heldur hreinsa allt út í stað þess að sitja uppi notandaupplýsingar og fleira frá þeim sem seldi þér hana.