Windows: Ef þú átt annaðhvort Windows tölvu og Mac lyklaborð, eða Mac tölvu og keyrir Windows líka á henni með BootCamp eða öðrum leiðum, þá getur verið að þú kannist við það vandamál að F1-F12 takkarnir virki ekki sem skyldi í Windows.
Apple Wireless Keyboard Helper er bót á máli, en þetta litla forrit gefur manni PrintScreen takka á Apple lyklaborði í Windows, iTunes stjórnun og fleira.
Hér getur að líta helstu lyklaborðsflýtivísanir sem verða virkar með uppsetningu forritsins:
- F3: PrintScreen
- F4: Task Manager
- F7-F9: iTunes control
- F10-F12: System volume Control
- Eject button toggles Fkeys/Functions.
- Fn + F key triggers function (useful when in F keys mode)
- Fn + Backspace = Delete
- Fn+ Eject: Eject CD
Að endingu er rétt að benda á að heiti forritsins er kannski ekki algjört réttnefni, því það virkar einnig á snúrutengdum Apple lyklaborðum.