fbpx

Nýr liður, Heimilisráð, er að byrja hér á Einstein.is, sem miðar að því að koma með ýmis ráð sem ekki tengjast tækni og tölvum (annaðhvort lítið eða ekki neitt), en miða þó að því að gera daglegt líf manns auðveldara eða þægilegra með einhverju móti.

Liðurinn verður prófaður í einhvern tíma, og síðan ákvörðun tekin um áframhald hans eftir því hver viðbrögðin verða

Fyrsta færslan í þessum lið er eftirfarandi myndband, sem sýnir hvernig maður getur gert ýmsa hluti mun hraðar en flestir gera þá. Ber þar að nefna hluti eins og að brjóta saman boli, skræla kartöflur, taka skurn af eggi, búa til sorbet ís á svipstundu og fleira.

Við viljum þó benda á að sum ráðin í myndbandinu eru sett fram meira af gríni en alvöru (sbr. ráðið um hvernig maður geti lagt bíl með betri hætti), þannig að við mælum bara með að fólk fylgi skynseminni varðandi hvaða ráð maður láti reyna á.

Avatar photo
Author

Write A Comment