fbpx

Lengi vel var hægt að framkvæma jailbreak á Apple TV 2 með forritinu Seas0nPass, þar til nú. Ástæðan er sú að Apple gaf út nýja útgáfu af iOS sem sniðið er að Apple TV, og hætti í kjölfarið að votta uppsetningu á eldri útgáfum af stýrikerfinu. Mac notendur geta nú framkvæmt jailbreak á Apple TV með útgáfu 5.2.1 (Windows útgáfa er væntanleg).

Jailbreak-ið sem er komið er svokallað tethered jailbreak, sem þýðir að ekki er hægt að endurræsa Apple TV spilarann og halda jailbreak-inu nema spilarinn sé tengdur við við tölvu, og Seas0nPass sé notað til að kveikja á honum (velur Boot Tethered í Seas0nPass). Blessunarlega þá þarf maður ekki að gera þetta tethered boot nema örsjaldan, þar sem að spilarinn slekkur aldrei alveg á sér.

Að neðan má finna leiðarvísi til að framkvæma tethered jailbreak á Apple TV 2 með útgáfu 5.2.1:

[pl_label type=“warning“]Ath[/pl_label] Við mælum ekki með því að einstaklingar uppfæri tæki sín og framkvæmi jailbreak ef þeir eru nú þegar með jailbreakað Apple TV. Ráðleggjum einungis þeim að prófa þetta sem hafa uppfært Apple TV 2 spilara sína í útgáfu 5.2.1.

Skref 1

Náðu í nýjustu útgáfuna af Seas0nPass með því að smella á stýrikerfið þitt. (Mac útgáfa) (Windows útgáfa)

Skref 2:

Opnaðu Seas0nPass. Eftir að Seas0nPass er komið þá skaltu smella á  Create IPSW hnappinn.

Skref 3:

Þegar Seas0nPass hefur búið til IPSW skrá, þá biður forritið þig um að tengja Apple TV við tölvuna með micro-USB kapli og setja það í DFU Mode.

Skref 5:

Seas0nPass opnar iTunes fyrir þig, og setur IPSW skrána inn. Eftir að Restore hefur klárast í iTunes, þá skaltu taka micro-USB snúruna úr sambandi í stutta stund. Þetta er mikilvægt svo að hið svokallaða tethered boot muni virka almennilega á eftir.

Framkvæmdu Tethered Boot með Seas0nPass

Skref 1: Farðu nú með Apple TV spilarann að sjónvarpinu (en ekki tengja við HDMI alveg strax).

Skref 2: Opnaðu Seas0nPass og veldu Boot Tethered.

Skref 3: Seas0nPass biður þig aftur um að tengja Apple TV við tölvuna með micro-USB kapli OG rafmagnssnúru, svo hægt sé að setja það í DFU Mode. Fylgdu leiðbeiningum á skjánum til að setja Apple TV í DFU Mode.

Skref 4: Eftir að skilaboðin „Tethered boot complete!“ koma í Seas0nPass, þá skaltu skipta út micro-USB snúrunni fyrir HDMI-snúru. Athugaðu samt að nauðsynlegt er að tengja HDMI kapalinn á meðan ljósið framan á Apple TV er ennþá að blikka.

Skref 5: Allt búið. Í besta falli þarftu ekki að gera þetta aftur, en annars er þetta alls ekki jafn erfitt og sumir gera sér í hugarlund.

Avatar photo
Author

Write A Comment