fbpx

Í umfjöllun okkar um nýja Apple TV-ið höfum við gert lesendum auðveldara að hvetja RÚV til að búa til forrit fyrir Sarpinn á Apple TV, enda teljum við slíkt forrit vera mikla bót fyrir sjónvarpsunnendur. Í apríl á þessu ári sendi @RUVohf þetta frá sér á Twitter:

Í gær bárust svo þær fréttir að Sarpurinn komi fyrir tvOS fyrir Apple TV 4 með haustinu:

Við hjá Einstein.is fögnum þessum fréttum, því leiga á sjónvarpsmyndlykli kostar meira en mánaðargjald margra vinsælla streymiþjónusta. Vert er að geta þess að hægt er að njóta RÚV í beinni með forriti sem ber hið einfalda nafn „Rúv“ á Apple TV 4.

Einnig geta þeir sem eru með OZ aðgang náð í OZ Club Player, sem er með RÚV í beinni ásamt einhverjum hluta af eldra efni.