Ef þú ert einn af 200 milljón notendum Dropbox þá veistu eflaust að maður leggur ýmislegt á sig til að fá meira pláss (sjá t.d. þessa færslu ef þú vilt fá 1GB af pláss á nokkrum mínútum).
Dropbox keypti tölvupóstforritið Mailbox stuttu eftir að það kom á markað, og nú býður Dropbox hverjum þeim sem tengir Mailbox við Dropbox upp á 1GB aukalega af plássi án endurgjalds.
Með því að tengja Mailbox við Dropbox, þá verða viðhengi í póstinum þínum vistuð í Dropbox, sem auðveldar þér að opna þau síðar á tölvunni þinni (svo fremi sem Dropbox er uppsett á henni).
Eina sem þú þarft að gera til að fá aukið pláss er þetta:
- Náðu í Mailbox (ef þú hefur ekki gert það nú þegar).
- Tengdu það við Gmail reikninginn þintn.
- Farðu í Settings og smelltu á Dropbox. Ef Dropbox forritið er einnig uppsett á iOS tækinu þínu þá þarftu að veita Mailbox forritinu aðgang, en annars þarftu að innskrá þig á Dropbox.com og gera slíkt hið sama.