Margir þeirra sem uppfærðu nýlega í Windows 10 hafa átt í vandræðum með að senda póst í gegnum Microsoft Outlook.
Til að leysa þetta vandamál, skaltu gera eftirfarandi:
- Smelltu á Start hnappinn og leitaðu að Cmd eða Command Prompt. Hægri smelltu á forritið og veldu Run as Administrator. 
- Eftir að Administrator glugginn birtist þá skaltu skrifa
sfc /scannow og ýta á Enter.  
- Nú mun Windows framkvæma smá lagfæringar á ýmsum kerfisskrám, meðal annars nokkrum sem tengjast Microsoft Outlook. Þetta ferli gæti tekið allt að 30 mínútur, en tók rúmar 10 mínútur á fartölvu undirritaðs sem er með SSD disk.
- Endurræstu svo tölvuna að þessu búnu, opnaðu Outlook og prófaðu að senda póst.
 
			
			 
				
		 
			
 
			 
			 
			![Rachel og Chandler læra á Windows 95 [Myndband]](https://i0.wp.com/einstein.is/media/2015/05/chandler-rachel-friends.jpg?resize=370%2C245&ssl=1) 
			 
			