Fyrirtækið Apple hefur sent frá sér tvær nýjar sjónvarpsauglýsingar fyrir iPhone 4S, og sem fyrr þá er aðstoðarkonan hún Siri í brennideplinum. Fyrri auglýsingin sýnir ferðalanga nýta Siri til að finna bestu leiðina á áfangastað sinn með Google Maps, og finna áhugaverða matsölustaði og fleira með Yelp, sem er staðbundið þjónustuforrit.
Tweetbot er vinsælasta Twitter forritið í App Store sem er ekki ókeypis, og ekki að ástæðulausu. Forritið kom eins og…
Ef þú ert vefstjóri á síðu, einni eða fleiri, þá getur verið skelfilegt að lenda í því að þú skreppur í bíó, kemur heim, og sérð þá að síðan þín er búin að vera niðri í 2-3 tíma. Pingdom er reyndar ekki svo gott að það komi í veg fyrir að síðan hrynji, en þjónustan kannar með reglulegu millibili hvort síðan þín sé uppi.
Ef Pingdom sér að síðan liggur niðri, þá færðu tilkynningu um hæl, ýmist í tölvupósti, sms-i, eða með tilkynningu í iPhone eða Android forritinu þeirra.
Leikjafyrirtækið OnLive kynnti til sögunnar nýtt forrit, OnLive Desktop, á CES raftækjasýningunni sem fór fram í Las Vegas, Bandaríkjunum fyrr…
Fyrr í vikunni greindum við frá því að pod2g hefði tekist að jailbreak-a bæði iPhone 4S og iPad 2, en að það ætti eftir að setja jailbreak-ið saman í forrit sem fyrir einstaklinga svo þeir gætu sjálfir framkvæmt jailbreak á tækjum sínum.
2 dögum síðar er untethered jailbreak komið fyrir iOS tæki með A5 örgjörva (þ.e. iPhone 4S og iPad 2). Forritið var gert af Chronic Dev Team og hefur fengið heitið Absinthe, en svokallað stjörnulið iPhone hakkara vann að því að búa til þetta untethered jailbreak. Jailbreak-ið kemur því ekki út í formi RedSn0w, Sn0wbreeze eða PwnageTool útgáfu eins og venjulega (ekki er þó loku fyrir það skotið að slík útgáfa komi út síðar).
Hakkarann pod2g þekkja flestir sem hafa fylgst náið með iOS 5 jailbreak fréttum, en hann er fremstur í flokki þeirra…
Ef þú átt ekki Mac tölvu eða Apple TV sem þú getur notað til að senda tónlist, myndir eða myndbönd yfir úr iPhone símanum, iPadinum eða iPod touch tækinu þínu, þá geturðu nú spilað tónlist eða myndbönd á Windows tölvunni þinni með því að setja upp eitt lítið forrit.