fbpx

Bandaríska kapalstöðin HBO ýtti streymiþjónustunni HBO NOW úr vör árið 2015. Nokkrum árum síðar, eða í maí 2020 breytti þjónustan um gír og heitir nú HBO MAX. Margir Íslendingar hafa áhuga á þjónustunni, en stranda á því hvernig þeir geta orðið sér úti um áskrift. Við svörum kallinu, og birtum því hér leiðarvísi sem sýnir ferlið frá byrjun til enda.

Hvernig nota ég HBO MAX á Íslandi?

Fyrsta skrefið er að búa til reikning hjá playmoTV og breyta DNS stillingunum á tækinu þínu svo HBO Max haldi að þú sért í Bandaríkjunum.

1 – Farðu á https://playmo.tv og búðu til reikning. Það er fljótlegast að búa til reikning með tengingu við Google eða Facebook reikning, og þá geturðu prófað þjónustuna án endurgjalds í 7 daga. Síðan er annaðhvort hægt að kaupa mánaðaráskrift á 4,99 dollara eða ársáskrift á 50 dollara.

 

2 – Nú skaltu breyta DNS stillingunum á tækinu þar sem þú vilt nýskrá þig hjá HBO Max. Með því að gera það þá geturðu nýskráð þig hjá HBO Max, og notað þjónustuna á tækinu þínu.

Skref 2 – Breyta DNS stillingum

Windows 10

Windows 10/11

Skref 1 Ýttu á START takkann, og svo Settings.
Skref 2 Smelltu síðan á Network & Internet og smelltu svo á Change adapter settings.
Skref 3 Hægri-smelltu nú á tenginguna þína (Líklega Wireless Network Connection) og veldu Properties.
Skref 4 Mikilvægt. Taktu hakið af TCP/IPv6. Veldu síðan Internet Protocol Version 4 (TCP/IPv4). Þegar það er valið skaltu smella á Properties hnappinn sem er fyrir neðan.
Skref 5 Veldu núna General flipann, hakaðu við „Use the following DNS server addresses“ og settu eftirfarandi gildi inn:

Preferred DNS server 82.221.94.251
Alternate DNS server 109.74.12.20

Skref 6. Endurræstu tölvuna, og farðu á https://playmo.tv til að kanna hvort þjónustan sé orðin virk hjá þér. Ef þú sérð skilaboðin „This device is correctly linked to playmoTV“, þá er allt klappað og klárt og þú getur haldið áfram.


Mac

Apple TV

iPhone/iPad

Android

Mikilvægt: Til að virkja þjónustuna, þá þarftu að virkja þjónustuna í einhverri tölvu þarftu að fara á http://playmo.tv, innskrá þig og kanna hvort þjónustan sé orðin virk.

Ef þú ferð á playmo.tv/my-account þegar þú ert innskráð/innskráður þá viltu sjá þrjú græn gátmerki (e. checkmark). Ef þú sérð það, þar á meðal „This device is correctly linked“ þá ættirðu nú að geta nýskráð þig eða notað HBO MAX.

Skref 5.5: Náðu í og opnaðu HBO MAX forritið, og skráðu þig inn. Ætti að virka eins og í sögu.

Nýskráning og greiðsla hjá hjá HBO MAX

HBO Max tekur ekki við íslenskum kreditkortum, þannig að til að borga fyrir HBO Max þarftu annaðhvort að:

Borga í gegnum HBO Max á iOS/Apple TV

Með þessari leið þá nýtirðu bandarískan App Store reikning og borgar fyrir þjónustuna í HBO Max appinu á Apple TV eða iPad/iPhone.

Ef þú er með bandarískan Apple reikning og inneign á reikningnum, þá ættirðu að getað nýskráð þig hjá HBO Max í gegnum appið og notað inneignina til að greiða fyrir áskriftina.

Til þess að gera það er nóg að opna forritið og nýskrá þig

Ég er ekki með bandarískan iTunes reikning

Ef þú ert ekki með bandarískan iTunes reikning þá skaltu fylgja þessum leiðarvísi og stofna slíkan reikning.

Eplakort selur inneignarkort fyrir ýmsar þjónustur, þ. á m. iTunes/App Store. Ef þú getur ekki borgað með greiðslukortinu á HBO Max, þá geturðu keypt inneignarkort þar og leyst út. Þegar þú kaupir inneign hjá Eplakort þá færðu inneignarkóðann samstundis í tölvupósti.

Þegar þú hefur fengið iTunes inneignarkóðann og innleyst hann, þá geturðu bara opnað HBO Max appið og búið til reikning.

Skref 3 – Bandarískur iTunes reikningur stofnaður

iTunes

Ef þú ert ekki með bandarískan iTunes reikning, þá þarftu að stofna einn slíka. Við höfum ritað slíkar leiðbeiningar hér á Einstein.is, bæði fyrir notendur sem eru á iOS tækjum, og einnig þá sem eru á hefðbundnum einkatölvum (þ.e. Windows og Mac, Linux notendur eru úti í kuldanum þar engin Linux útgáfa er til af iTunes).

Að gefnu tilefni er réttast að benda á að þegar þú fylgir leiðarvísinum að ofan þá er mjög mikilvægt að þú reynir að sækja ókeypis forrit í App Store, og stofnir bandarískan reikning í framhaldi af því, en opnir ekki iTunes og stofnir reikning beint.

Ég er ekki viss hvort ég sé með íslenskan eða amerískan iTunes reikning? Hvernig get ég komist að því?

Auðveldasta leiðin til þess er með því að fara í vinsæl forrit sem kosta einhvern pening. Ef forritin kosta $0,99 þá ertu líklega með amerískan reikning, en ef þau kosta $1,24 þá ertu með íslenskan reikning.

Skref 4 – Komin/n með bandarískan iTunes reikning. Hvað nú?

Þegar þú ert búin/n að stofna bandarískan iTunes reikning, þá þarftu að kaupa inneignarkort, svo þú getir greitt fyrir HBO MAX áskriftina þína. Eplakort selur slík kort og sendir kóðann samstundis í tölvupósti.

Skref 5 – Kóðinn kominn

Þegar kóðinn hefur verið afhentur þá þarftu bara að leysa hann út. Það gerirðu bara með því að opna App Store í iOS tæki, skruna neðst í Featured flipanum og velja Redeem. Ef þú ert í iTunes forritinu á Mac/PC þá smellirðu á iTunes store, og velur þar Redeem í hægri valmyndinni.

Skref 6 – Tengja bandarískan iTunes reikning við Apple TV

Leggðu nú tölvuna frá þér (þ.e. nema til að lesa þennan leiðarvísi) og skiptu nú yfir á Apple TV tækið þitt. Til að tengja bandarískan iTunes reikninginn við Apple TV, þá þarftu að innskrá þig í App Store, og leita að HBO MAX forritinu.

Þegar þú hefur tengt bandarískan iTunes reikning við Apple TV, þá geturðu nýskráð þig hjá HBO MAX, og einnig leigt kvikmyndir og þætti í i iTunes myndveitunni (þ.e. Movies og TV Shows sem er fast í efstu röðinni).

Skref 7 – HBO MAX nýskráning

Nú. Ef þú ert búin/n að…

  • Tengjast playmoTV á Apple TV.
  • Búa til bandarískan iTunes reikning.
  • Kaupa og og leysa út inneignarkort fyrir reikninginn þinn

þá skaltu halda áfram, því núna ætlum við að stofna reikning hjá HBO MAX. Nú skaltu smella á HBO MAX á Apple TV tækinu þínu.

Skref 8

Þegar þú smellir þá HBO MAX þá blasir skjár við þér sem býður þér að nýskrá þig í gegnum appið. Ef þú fylgdir leiðarvísinum í þaula, þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að þú smellir á „Start Your Free Trial“ hnappinn efst á skjánum, og búir til HBO MAX reikning.

Borga með kreditkorti

 

Þá ætti allt að vera komið. Ef eitthvað klikkar í uppsetningunni, eða ef þú ert með einhverjar spyrningar þá skaltu ekki hika við að hafa samband og við svörum eins fljótt og auðið er.

4 Comments

  1. Guðmundur Gunnar Garðarsson Reply

    en ef maður er með samsung tæki og notar ekki apple vörur?

    • Þá þarftu líkast til að bíða þangað til í sumar með að nota HBO NOW. Sérðu HBO NOW á tækinu þínu?

  2. Þetta barst í gær:
    Dear HBO NOW User:

    It has come to our attention that you may have signed up for and viewed video content on the HBO NOW streaming service from outside of the authorized service area (the United States, including D.C. and certain US territories).

    We would like to take this opportunity to remind you that the HBO NOW streaming service is only available to residents of the United States, for use within the United States. Any other access is prohibited by our Terms of Use.

    If you feel that you have received this message in error, and that you have both met the eligibility requirements for HBO NOW and have been using the service within the United States, please call us at 1-855-366-2183. If we do not hear from you by April 21, we will proceed with deactivating your HBO NOW account without further notice to you. Please note that it is your responsibility to cancel any automatic billing with your Subscription Provider to avoid incurring charges for any future months.

    • Fékk þennan póst líka. Hringdi í númerið og var beðinn um heimilisfang í Bandaríkjunum. Bíð núna spenntur að sjá hvað gerist í framhaldinu.

      Annars er lítið við þessu að gera. Ef þeir loka á reikninginn þá er kannski hægt að prófa að búa til nýjan reikning og sjá hvort HBO sendi sama póst varðandi þann reikning.

      Erum að uppfæra greinina núna og bæta fyrirvara við um þetta.

Write A Comment