Ef þú hefur jailbreak-að iOS tæki (iPhone, iPad, iPod Touch) á iOS 5.0.1 símann þinn, þá getur vel verið að iBooks virki ekki á tækinu þínu, sem er skiljanlega heldur hvimleitt. Einföld lausn er við þessu, sem krefst þess að þú SFTP-ir inn á tækið þitt.
Til þess að laga bilað iBooks á iOS 5.0.1 eftir jailbreak þá þarftu að gera eftirfarandi:
Skref 1: Náðu í eftirfarandi skrá: iBooksFix_GizmoWebs.deb (Uppfært: 2. des 2014: Skráin farin).
Skref 2: Opnaðu Cydia, leitaðu að OpenSSH og settu það upp.
Skref 3: Passaðu að iOS tækið og tölvan sem þú ert að gera þetta á séu tengd við sama WiFi.
Skref 4: Á iOS tækinu þínu skaltu fara í Settings > WiFi, slá á bláu örina við netið sem þú ert tengdur við, og skrá niður hvað stendur í IP address (hugsanlega 192.168.1.x eða 10.0.1.x).
Skref 5: Sæktu forrit sem styður SFTP (t.d. WinSCP á Windows eða Cyberduck á Mac). Opnaðu þessi forrit og reyndu að tengjast þínu tæki. Í server name skráiru IP töluna þína sem þú tókst niður í skrefi 4. Notendanafn er svo root og lykilorðið alpine.
Skref 6: Þegar þú hefur tengst iOS tækinu þínu þá skaltu vara í möppuna „/var/root/Media/Cydia/AutoInstall“ og setja skrána úr skrefi 1 í þá möppu.
Skref 7: Endurræstu iOS tækið þitt, og að því búnu ætti allt að vera komið í lag.
2 Comments
“/var/root/Media/Cydia/“ ég finn nú ekki einusinni þessa möppu…?!? einhver með upplýsingar fyrir mig hvar þetta gæti verið staðsett annars 😀
/var/root/Media er til, en þú þarft að búa til Cydia möppuna, og AutoInstall þar undir.