Ef þú hefur einhvern tímann lent í þeirri vandræðalegu aðstöðu að bjóða upp á vín án þess að eiga upptakara, þá geturðu notað skóinn þinn í staðinn fyrir að stinga korktappanum niður í flöskuna og hella í gegnum sigti.
Í myndbandinu að neðan má sjá hvernig þetta er gert, og þú getur þá verið sannkallaður MacGyver ef þessi staða kemur upp. Myndbandið er á móðurmáli matarlistarinnar, en samt ætti það ekki að dyljast neinum hvernig þetta er framkvæmt.
UPPFÆRT 5. feb 2013: Upprunalega myndbandið var tekið af YouTube, og því höfum við sett inn eftirfarandi myndband sem sýnir hvernig þetta er framkvæmt.
3 Comments
dead link
Hvert er annars móðurmál matarlistarinnar? Áttirðu kannski við móðurmál matarlystinnar?
Hér er linkur sem sýnir hvernig opna má vínflösku með skó. Væri gaman er einhver veitingastaður tæki þessa aðferð upp!
Nei hver þremillinn, þetta er ekki nógu gott. Myndbandið var á frönsku, og þess vegna tókum við svona til orða.
Við notum kerfi til að fylgjast með öllum linkum sem við setjum inn á vefinn en það virkar greinilega ekki þegar YouTube er annars vegar.
Er búinn að skipta út gamla myndbandinu fyrir annað sem virkar. Kærar þakkir fyrir að vekja athygli á þessu 🙂