fbpx

Vefsíða vikunnar: How Long Will My Coffee Last

Vefsíða vikunnar að þessu sinni er lítil og fábrotin síða sem heitir How Long Will My Coffee Last.

Raunar mætti lýsa síðunni sem nokkurs konar vefforriti, því á síðunni er ekkert nema lítil reiknivél sem kaffiáhugamenn geta notað til að reikna út hversu lengi kaffipokinn endist hjá þeim miðað við neyslumynstur þeirra.

Þegar þú ferð á síðuna þá þarf eingöngu að slá inn hversu margir deila kaffinu, hversu mikið kaffi er drukkið á dag, hversu sterkt þú hefur kaffið þitt og hversu stóran kaffipoka þú ert með. Vefsíðan reiknar svo jafnóðum út hversu lengi kaffið mun endast hjá þér.

Avatar photo
Author

Write A Comment