Frá því Sony kynnti PS4 leikjatölvuna í febrúar síðastliðnum þá hafa PlayStation notendur beðið spenntir eftir því hvenær tölvan myndi koma á markað, enda þótti það nokkuð rúmur tímarammi þegar Sony sagði að tölvan myndi koma á markað „fyrir jól“.
Á Gamescom tölvuleikjaráðstefnunni sem fram fer í Köln þá gerði Sony gott betur og tilkynnti að tölvan muni koma á markað þann 15. nóvembar í Bandaríkjunum og 29. nóvember í Evrópu. Tölvan mun kosta 349 pund í Bretlandi, sem gera tæpar 67.000 kónur.
Miðað við útreikninga hjá Nörd Norðursins þá má gera ráð fyrir að tölvan muni kosta 100 þúsund krónur hérlendis, a.m.k. til að byrja með.