fbpx

App Store - iOS 6Ef maður ætti að nefna tvennt sem iOS 6 notendur kvarta mest undan, þá er það annars vegar Apple Maps, og hins vegar sú staðreynd að App Store er hægari hjá flestum heldur en hún var í eldri útgáfum af iOS.

iOS notendum til ánægju þá er hægt að bæta úr þessu með einföldu ráði.

Til þess að laga þetta þá skaltu fara í Settings > Privacy, og þar skaltu smella á Location Services. Þegar þangað er komið, þá skaltu skruna (e. scroll) neðst á skjáinn og smella á System Services. Þar skaltu síðan taka hakið af Genius for Apps.

Lokaðu App Store (með því að tvísmella á Home takkann og loka forritinu), og opnaðu það svo á ný, og þá ætti það að öllum líkindum að vera hraðara hjá þér.

 

Avatar photo
Author

Write A Comment