fbpx

Pair forrit iPhone: Ef þú og maki þinn eruð í sitt hvoru landinu og viljið sýna senda „þumlakossa“, einlæg skilaboð eða teikna væmnar myndir til að senda ykkar á milli, þá gæti ykkur þótt gaman að prófa forritið Pair.

Forritið er þannig úr garði gert að einungis er hægt að senda einum aðila skilaboð, þannig að þú munt aldrei lenda í því að ætla að senda bróður þínum teiknaða mynd af hjarta sem þú ætlaðir að senda þinni heittelskuðu.

Forritið kom út í mars á þessu ári og hefur síðan farið sigurför um heiminn. Þegar þú opnar forritið í fyrsta sinn þá ferðu í gegnum einfalt nýskráningarferli og bætir síðan þessum eina aðila, og þegar sá aðili hefur skráð sig þá er hægt að hefja notkun á forritinu.

 

Pair - Thumbkiss

Auk þessara væmnu fídusa, þá býður forritið einnig upp á að skrá inn afmælisdagana ykkar og daginn sem þið kynntust. Einnig er hægt að búa til sameiginlegan verkefnalista, sem mörgum finnst þægilegt að nota þegar flutningar eru í nánd eða stór utanlandsferð framundan.

Pair er fáanlegt í App Store og er ókeypis.

Heimildir: Bridal Musings – TIME
Avatar photo
Author

Write A Comment