fbpx

This Is Why I'm Broke

This Is Why I’m Broke er síða sem tekur saman ýmsa hluti sem hægt er að kaupa af hinum ýmsu netverslunum, og getur gefið manni ýmsar hugmyndir um hvað sé hægt að gefa vinum og vandamönnum í jólagjöf.

Úrvalið á síðunni er mikið, og þar geta allir  fundið hluti sem þeim finnst ýmist vera sniðugir, nauðsynlegir og eða alveg út í hött.

Gott dæmi um vörur sem síðan bendir manni á eru svokölluð Suitjamas, sem aðdáendur How I Met Your Mother kannast kannski við. Einnig má finna iPhone hulstur með frystum Han Solo úr Star Wars.

Vefsíða vikunnar: This Is Why I'm Broke
Tölvuleikjaunnendur geta líka fundið eitthvað sér við hæfi á síðunni, líkt og Space Invaders sófann eða Sub Zero límmiðann.

Einn hlutur í sniðugri kantinum er svo Endless Edges Brownie formið, sem eins og nafnið gefur til kynna gefur öllum færi á að fá ljúffengu endakökuna.

Avatar photo
Author

Write A Comment