fbpx

Google Chrome: Ef þú ert að fara út í bústað eða á einhvern stað þar sem þú verður ekki í netsambandi, þarft svara nokkrum tölvupóstum en vilt ekki notast við tölvupóstforrit á borð við Microsoft Outlook, Mozilla Thunderbird eða Apple Mail, þá Gmail Offline sem þú mættir skoða.

Gmail Offline er ókeypis Google Chrome forrit sem er ætlað aðstæðum sem þessum, þ.e. lestur og skrif tölvupósta án nettengingar. Forritið er gert með  HTML5 tækni, og byggir á Gmail vefforritinu fyrir spjaldtölvur, sem er ætlað að virka óháð því hvort maður sé nettengdur eður ei.

Eftir að þú setur upp Gmail Offline þá opnaru bara nýjan flipa og þar ættirðu að sjá Offline Google Mail

Ath! Ef þú sérð einungis lista yfir þær síður sem þú ferð oftast á þá skaltu velja flipa neðst á síðunni og velja þar Apps, en ekki Most visited.

 

Þegar þú opnar Gmail Offline þá er viðmótið eins og á spjaldtölvum, þ.e. með innhólfinu í dálki vinstra megin og tölvupóstunum sjálfum hægra megin.

 

Stillingar forritsins eru heldur frumstæðar, en þú ferð í þær með því að smella á skrúfboltann uppi í hægra horninu. Einu stillingarnar sem maður haft er hversu miklum pósti maður vill hala niður sem hægt er að skoða (vika, tvær vikur eða mánuður) eða hvort maður vilji búa til sjálfgefið svar ef maður fer tekur sér frí frá tölvupóstinum út af einhverjum ástæðum.

Avatar photo
Author

Write A Comment