fbpx

Franski forritarinn pod2g greindi frá því á Twitter síðu sinni fyrir stuttu, að verið væri að leggja lokahönd á untethered jailbreak fyrir iOS 5.1.1.

Þetta nýja jailbreak mun virka á öllum tækjum sem keyra iOS 5.1.1, að undanskildu Apple TV 3. Það þýðir að hægt verður að jailbreaka eftirfarandi tæki: iPhone 4S, iPhone 4, iPhone 3GS, nýja iPadinn (iPad 3), iPad 2, iPad, iPod touch 4G/3G og að lokum Apple TV 2.

Jailbreak-ið mun koma í uppfærðri útgáfu af Absinthe, sem einhverjum er kunnugt um, en sú aðferð er notuð til að jailbreaka iPad 2 og iPhone 4S með iOS 5.0.1. Absinthe fær þá uppfærslu í 2.0 útgáfu sem styður iOS 5.1.1.

Avatar photo
Author

Write A Comment