fbpx

Eins og þú veist eflaust þá er svartur föstudagur eða Black Friday í dag, sem er einn stærsti netverslunardagur ársins.

Rétt eins og aðrir þá lætur Amazon ekki deigan síga og þar má finna margar vörur á frábæru verði. Hér fyrir neðan geturðu séð bestu Black Friday tilboðin hjá Amazon. Tilvalið fyrir Íslendinga sem ætla að leggja leið sína til Bandaríkjanna fyrir jólin, þá sem leigja box hjá þjónustu á borð við MyUS eða Íslendinga sem búa erlendis.

Heyrnartól

AirPods

  • AirPods (3. kynslóð). Endurhönnuð AirPods komu út í síðasta mánuði. Listaverð er $179.99 en kosta núna $149.99. (20.076 kr. miðað við VISA gengi 26/11/2021).
  • AirPods Pro. Þessi eru með Active Noise Cancellation, eða virka hljóðeinangrun eins og það er stundum kallað á íslensku, sem minnkar umhverfishljóð ennfremur. Listaverð er $249.99 en kosta núna $169.99 (22.752 kr.)
  • AirPods (2. kynslóð). Þessi sígildu AirPods kosta venjulega $159 en eru núna á $99.99 (13.250 kr.)
  • AirPods Max eru líka á góðum afslætti. Kosta núna $439 (58.890 kr). í stað $549.

Bose / Sony o.fl.
Fyrir þá sem eru -Bose megin í lífinu þá er einnig hægt að gera góð kaup á þeirra heyrnartólum.

  • Bose QuietComfort 35. Þetta eru þessi klassísku Bose heyrnartól sem flestir kannast við. Þessi kosta venjulega $349 vestanhafs en fást núna á einungis $179 (24.091 kr.)

Apple vörur

  • Apple Watch SE (GPS, 40mm) – Þetta úr er með sama örgjörva og Apple Watch Series 5 sem kom út árið 2019. Listaverð er $279.00 en kostar núna $219.99 (29.445 kr.)
  • Apple Watch Series 7 (GPS, 41mm) – Nýjast kynslóðin af Apple Watch. Listaverð er $399.00 en kostar núna $379.99 (50.859 kr.)
  • Apple Watch Series 5 (Stainless Steel – GPS + Cellular, 40mm). Það er vert að hafa í huga að ekki er víst að eSIM möguleikinn á úrinu virki með Úrlausn og þar til gerðum lausnum sem eru til þess fallnar að gera notendum kleift að nota úrið án símans með netsambandi. Listaverð á þessu úri er $749 en fæst núna á einungis $459 (61.433 kr.)
  • iPad Pro 12.9 tommu (Wi-Fi, 256 GB) – Einnig hægt að fá með meira og minna geymsluplássi en þá er ekki víst að þú fáir gripinn fyrir jól. Listaverð á þessum er $1199 en kostar nú $999 (133.707 kr.)
  • Apple TV 4K (32GB) – Listaverð á þessu er $179 en fæst núna á $169.95 (22.752 kr.) sem er gjöf en ekki gjald.

Streymitæki

  • Amazon Fire TV Stick 4K. Það er frábært að eiga eitt svona til að hafa með í bústaðaferðum, ferðalögum og fleira. Á tækinu sjálfu er HDMI tengi þannig að þú þarft ekki einu sinni að kaupa HDMI kapal (sem gæti líka verið dýrara en sjálft tækið). Listaverðið á þessu er $49.99 en fæst núna á $24.99 (3346 kr.)
  • Roku Streaming Stick 4K. Þessir eru vinsælir í Bandaríkjunum en hafa ekki náð miklu flugi annars staðar. Er ein helsta samkeppnisvara á móti Fire TV vestanhafs, og kostar núna $29.00 (3881 kr.)
  • Google Chromecast. Sígilt Chromecast tæki. Listaverð $29.99 en kostar núna $19.99 (2.676 kr.)

Amazon vörur

Flestar vörur sem Amazon framleiðir eru alltaf á ríflegum afslætti á svörtum föstudegi.

 

Annað

 

 

Avatar photo
Author