fbpx

Ef frá er talinn Steve Jobs, þá er Sir Jonathan Ive yfirhönnuður Apple talinn eiga hvað mestan þátt í velgengni fyrirtækisins síðustu 10 árin.

Stílhrein hönnun á Apple vörum hefur vakið mikla eftirtekt í gegnum árin, og haft slík áhrif á fólk að iMac tölvur eru nú talið flott stofustáss hjá fólki ólíkt gömlu turntölvunni sem flestir földu undir borði inni í lokuðu herbergi.

Hann Jony Ive (viðurnefnið hans) fékk þó ekki hugmyndina að Apple tækjunum með því að horfa á hvítan striga, heldur sótti innblástur í hönnun sína frá Þjóðverjanum Dieter Rams, sem er best þekktur fyrir störf sín hjá raftækjafyrirtækinu Braun.

Í myndunum hér fyrir neðan má sjá skemmtilegan samanburð á nokkrum af helstu Apple tækjum síðasta áratugar og þeim raftækjum frá Braun sem höfðu áhrif á hönnun Jony Ive.

Braun T3 vasaútvarp og iPod tónlistarspilarinn
Braun T3 vasaútvarp og iPod tónlistarspilarinn
Braun LE1 hátalari og iMac borðtölvan
Braun LE1 hátalari og iMac borðtölvan
Braun reiknivél og iPhone reiknivélin
Braun reiknivél og iPhone reiknivélin
Braun T1000 útvarp og Mac Pro tölvan
Braun T1000 útvarp og Mac Pro

 

Avatar photo
Author

Write A Comment