fbpx

CCleanerWindows/Mac: Ef þér finnst þú aldrei vera með pláss á harða disknum , eða þá að tölvan er orðin of hæg, þá ættir þú að prófa CCleaner, sem er ókeypis forrit frá fyrirtækinu Piriform. Oftar en ekki, þá er tölvan manns orðin hæg af því að það er allt of mikið af drasli inni á tölvunni sem veldur því að viðbragðstími tölvunnar eykst, eigandanum til mæðu.

Hér kemur CCleaner til sögunnar, en forritið losar þig við þetta rusl (c-ið í CCleaner stendur fyrir crap) með mjög einföldum hætti, og bónusinn er sá að tölvan verður oft hraðari fyrir vikið (við getum ekki tryggt að það gerist, en reynslan er sú að notendur eru almennt ánægðari með tölvurnar sínar eftir að þeir keyra forritið).

Helstu skrárnar sem CCleaner eyðir öllum helstu skammtímaskrám sem geymdar eru á kerfinu (e. temporary files), en þar að auki finnur hún t.d. einnig flýtivísanir í forrit sem ekki eru lengur á forritinu og eyðir þeim, og færslum í Registry sem vísa á ekkert. Auk þess að eyða ónauðsynlegum skrám þá stendur líka vörð um einkalíf notenda sinna, með því að eyða ferlum (e. history) og kökum (e. cookies), sem stundum safna upplýsingum um notendur.

Þegar þú keyrir CCleaner þá geturðu alltaf fyrst látið forritið greina hvað hún finnur með því að velja Analyze, og þá færðu stutta samantekt á því hvaða gögnum forritið mun eyða (sem veltur á stillingunum þínum) og hversu mikið pláss fæst með því að keyra forritið. Samkvæmt hlutarins eðli, þá hreinsar maður almennt mest til þegar forritið er notað í fyrsta sinn, en síðan mælum við með því að nota forritið reglulega, a.m.k. einu sinni í mánuði.

Að neðan má sjá stuttan lista á ensku yfir helstu eiginleika CCleaner

Að endingu þá er CCleaner mjög létt í keyrslu, og inniheldur hvorki neinn spilli- eða njósnahugbúnað (e. malware og spyware).

CCleaner

Avatar photo
Author

Write A Comment