Þeir sem eru með erlendar stöðvar á fjölvarpinu sínu (eða í gegnum gervihnött) eru ef till vill farnir að sjá auglýsingarnar fyrir iPhone 5 sem Apple eru byrjaðir að sýna í sjónvarpi.
Auglýsingarnar eru fjórar talsins og fara mismunandi leiðir til að heilla hugsanlega kaupendur.
Fyrsta auglýsingin er Thumb, sem var til umfjöllunar fyrr í dag.
Önnur auglýsingin heitir Cheese og sýnir Panorama eiginleikann í iOS 6.
http://youtu.be/Xtm4ySJQPOc
Næst í röðinni er Physics sem fer út í það hvernig síminn geti verið svo ótrúlega lítill, en hraður um leið.
http://youtu.be/V4IRsCjMqdI
Fjórða og síðasta auglýsingin heitir Ears og sýnir hversu vel nýju heyrnartólin frá Apple, EarPods, falla að mannseyranu.
http://youtu.be/9-FmipwLsHc