Sá draumur gæti orðið að veruleika innan nokkurra ára að maður sest bara inn í bílinn sinn, stillir inn áfangastað og leggst svo út af á meðan bíllinn kemur manni til skila.
Google hefur undanfarin ár unnið að þróun bíls sem þarf ekki á ökumanni að halda til að komast á milli staða, og raunar verið með slíkar bifreiðar í prófun frá 2010.
Jerry Brown, ríkisstjóri Kaliforníu, undirritaði nýverið fylkislög sem heimila sjálfvirkum bifreiðum að keyra á vegum í Kaliforníu. Með þessum lögum þá mega sjálfkeyrandi bílar aka um göturnar í Kaliforníu, Nevada og Florida.
Bílarnir hafa vakið nokkra athygli, ekki síst meðal löggæslumanna, sem hafa stoppað bílana til þess að láta taka mynd af sér með þeim.
1 Comment
Hefur einhver heyrt um almenningssamgöngur? Lestir, strætó og rútur, jafnvel leigubílar. Sjaldan hefur maður heyrt af vitlausari samgöngutilraun…