fbpx

Svarti föstudagur eða Black Friday er nýafstaðinn, sem er stærsti verslunardagur ársins í Bandaríkjunum.

Af því tilefni mældi fjárfestingabankinn Piper Jaffray sölu á iPad spjaldtölvum annars vegar og Surface spjaldtölvum hins vegar. Mælingarnar voru gerðar í verslunarmiðstöðinni Mall of America, sem er staðsett í Minneapolis, heimabæ fyrirtækisins, og niðurstöðurnar voru sláandi.

Mall of America var talin hentugur staður fyrir þessa vettvangskönnun þar sem að verslunarmiðstöðin er bæði með Apple búð og Microsoft búð.

Sérfræðingar á vegum fyrirtækisins fylgdust með báðum búðum í tvær klukkustundir til að sjá hversu margir heimsóttu hvora búð. Fyrirtækið bar svo saman umferð þessar tvær klukkustundir þar sem fylgst var með báðum búðum og komst að eftirfarandi niðurstöðum:

  • Apple búðin seldi 17,2 vörur á klukkustund, á meðan Microsoft búðin seldi 3,5 vörur á klukkustund. Þar af voru allir nema viðskiptavinir Microsoft búðarinnar að kaupa X-Box leiki.
  • Apple búðin seldi 11 iPad spjaldtölvur á klukkustund. Microsoft seldi ekki eina einustu Surface spjaldtölvu.
  • Umferð um Microsoft búðina var einnig 47% minni heldur en í Apple búðinni.

Í myndinni fyrir neðan má svo sjá hversu mikið Apple seldi í Mall Of America allar átta klukkustundirnar sem þeir fyldust með búðinni. Fyrirtækið hefur fylgst með umferð um þessa Apple búð í fimm ár, og samanburðurinn við Microsoft búðina var nýr af nálinni.

Apple - Black Friday - Mall of America

Í myndbandinu fyrir neðan má sjá samanburð á umferð þessara tveggja verslana í verslunarmiðstöðinni Park Meadow sem staðsett er í bænum Lone Tree, Colorado.

http://youtu.be/FX1eTBeWoyw

Heimild: Fortune

Avatar photo
Author

Write A Comment