fbpx

iPhone 5

Líklegt þykir að næsta kynslóð af iPhone símanum frá Apple, iPhone 5S, muni koma á markað í ágúst á þessu ári. Einnig er talið að nýr iPad og iPad mini muni verða kynntir á næstu mánuðum.

Hönnun iPhone 5S mun vera óbreytt, en síminn mun skarta hraðari örgjörva og betri myndavél.

Orðrómar um næstu kynslóð af iPad spjaldtölvunni verða sífellt háværari, og fyrir stuttu birtust myndir á tæknivefjum víða um heim, sem margir álíta að sé iPad 5.

iPad 5 - bakhlið
Talið er að þessi mynd sé af af væntanlegum iPad 5. Hönnun spjaldtölvunnar meira í stíl við iPhone 5 og iPad mini.

iPhone 5 var kynntur í september á síðasta ári.

Heimild: iMore
Avatar photo
Author

Write A Comment