fbpx

LinkedIn-Pulse

Bandaríski samfélagsmiðilinn LinkedIn greindi nýverið frá því að fyrirtækið hafi keypt fréttaforritið Pulse á 90 milljónir dollara, jafnvirði 10,5 milljarða króna.

Pulse komst á listann okkar yfir 50 ómissandi iPhone forrit, en forritið býður upp á skemmtilega leið til að lesa efni á símanum, svo notendur geti fylgst með áhugaefnum sínum.

Pulse hefur lengi verið eitt vinsælasta fréttaforritið í App Store og Google Play, er með yfir 30 milljón notendur og birtir fréttir frá yfir 700 vefmiðlum.

Heimild: LinkedIn

 

Avatar photo
Author

Write A Comment