fbpx

Microsoft logoNokkuð hefur borið á því undanfarna daga að óprúttnir aðilar hafa hringt í fólk, kynnt sig sem starfsmenn tæknifyrirtækisins Microsoft og tjáð aðilum að það sé vírus í tölvunni þeirra.

Við viljum benda lesendum á að þessir aðilar eru svo sannarlega ekki starfsmenn bandaríska tæknirisans.

Grunlausum tölvunotendum er sagt að til að útrýma vírusnum verði það að opna ákveðna vefsíðu og hala niður vírusvarnarforriti. Forritið gegnir í raun þveröfugum tilgangi, um er að ræða vírus sem gefur þessum óprúttnu aðilum algert vald yfir tölvunum og geta þeir í kjölfarið valdið fólki fjárhagslegu tjóni.

Ammyy
Svona lítur vefsíðan út sem fólki er beint inn á

Tilgangur svikahrappanna kann að vera af ýmsum toga: Að fylgjast með hegðun tölvueigendanna og mögulega selja óprúttnum fyrirtækjum upplýsingarnar, stela leyfislyklum að keyptum forritum og síðast en ekki síst komast yfir greiðslukortaupplýsingar og notendanöfn og lykilorð í heimabanka. Þannig geta svindlararnir mögulega valdið fólki stórvægilegu fjárhagslegu tjóni. Eru því miður til fjölmörg dæmi um að fólk hafi glatað háum upphæðum í svindlum á borð við þetta.

Ekki er vitað fyrir víst í hversu marga hefur verið hringt hér á landi eða hversu margir hafa látið gabbast en á meðal þeirra sem hafa fengið þessi símtöl eru þrír íslenskir starfsmenn Microsoft. Þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á svindlurunum ættu að láta þjónustuaðila yfirfara og hreinsa tölvurnar sínar umsvifalaust, jafnvel þótt þær virðist í stakasta lagi.

Auðvelt er fyrir óprúttna einstaklinga að komast yfir símanúmer Íslendinga og hvetur Microsoft fólk til að vera á varðbergi. Fyrirtækið rekur sérstaka skrifstofu í Reykjavík en þar vinna eingöngu Íslendingar og þeir hringja aldrei í fólk nema það hafi sérstaklega óskað eftir því.

Avatar photo
Author

Write A Comment