fbpx

Apple fundur 22. október 2013

Apple hefur boðað til blaðamannafundar 22. október næstkomandi þar sem ný kynslóð af iPad spjaldtölvunni verður kynnt til sögunnar.

Á fundarboðinu er vísbending um að fyrirtækið hyggist greina frá ýmsum nýjungum, þrátt fyrir að nýjar kynslóðir af iPhone símanum hafi verið kynntar fyrir rúmum mánuði síðan.

Auk þess sem að ofan greinir, þá er talið að Apple muni kynna nýja kynslóð af iPad mini, koma með nánari upplýsingar og útgáfudag á OS X Mavericks og Mac Pro tölvunni.

Fundurinn byrjar kl. 10:00 á staðartíma eða 18:00 á íslenskum tíma og við munum að sjálfsögðu fylgjast með viðburðinum og greina frá því helsta.

 

Avatar photo
Author

Write A Comment