iOS (iPhone/iPad/iPod Touch): Mikið var að kýrin bar. Þótt margir séu mjög sáttir með sjálfgefna póstforritið sem fylgir öllum iOS tækjum, þá eru sumir sem finnst eitthvað vanta í það, einkum þeir sem eru vanir því að nota Gmail, sem býður upp á virkilega marga eiginleika (sbr. 10 ástæður fyrir því að þú ættir að nota Gmail og leiðarvísinn til að stjórna mörgum netföngum með Gmail). 2.nóvember síðastliðinn þá kom Gmail forrit frá Google í App Store, en var kippt út eftir mjög stuttan tíma þar sem villa var í forritinu varðandi tilkynningar (e. push notificiations).
Undanfarnar tvær vikur þá hafa starfsmenn Google unnið hörðum höndum að því að laga þessa villu (og fleiri) og í gærkvöld kom lagfærð útgáfa af forritinu.
iOS: Eins og margir vita, þá kynnti Apple fyrirtækið iCloud þjónustu til sögunnar með iOS 5, sem gerir notendum kleift að stilla saman gögn á milli iOS tækja sinna og tölvunnar. iCloud er frítt upp að 5GB, en kostar þá $20-$100/ár eftir því hversu mikið pláss maður vill nota í þjónustuna. … Gallinn við Box.net er þá sá að ekki er hægt að nálgast gögnin sjálfkrafa sem þú setur inn netið með Box.net, heldur verður að fara inn á síðuna þeirra sérstaklega og skrá þig inn þar.
iPhone: Ef þú átt iPhone, og hefur jailbreak-að símann, þá geturðu, með mjög einföldum hætti, bætt einu litlu forriti við símann sem gerir þér kleift að bæði skrifa og skoða sms-in þín í tölvunni þinni, að því gefnu að iPhone-inn þinn og tölvan séu tengd við sama WiFi.

iOS 5: Með nýju kerfi koma ný vandamál. Fjölmargir eigendur iOS tækja, einkum iPhone og iPad, kvarta nú sáran undan því að endingin á rafhlöðunni sé heldur dræm miðað við iOS 4 kerfið. Notendur eiga þá helst við að prósentustig rafhlöðu lækki frekar hratt á meðan síminn sé ekki í notkun, sem er heldur hvimleitt, ef maður er ekki með hleðslutæki á sér hvert sem maður er.
Vefur Ríkisútvarpsins hefur fengið uppfærslu (og það nokkur tímabæra) sem auðveldar bæði Mac notendum að horfa á efni af vefnum, auk þess sem eigendur snjallsíma og spjaldtölva geta nú bæði hlustað eða horft á efni af vefnum í tækjum sínum.