fbpx

Pizza Hut appið á Xbox 360

Bandaríska tæknifyrirækið Microsoft og flatbökukeðjan Pizza Hut hafa tekið höndum saman, en Xbox 360 geta nú pantað sér pizzu frá fyrirtækinu beint úr Xbox Live.

Pizza Hut forritið fyrir Xbox gerir svöngum tölvuleikjaspilurum kleift að skoða matseðil fyrirtækisins, eða velja álegg á pizzu og panta með Kinect hreyfiskipunum, raddskipunum eða með gömlu góðu fjarstýringunni.

Notendur geta tengt saman reikninga sína hjá Xbox og PizzaHut.com svo enn auðveldara sé að panta pizzur þegar fram líða stundir.

Avatar photo
Author

Write A Comment