fbpx

RedSn0w - logoiPhone Dev-Team hefur sent frá sér uppfærða útgáfu af RedSn0w, sem gerir notendum kleift að framkvæma jailbreak á tækjum sínum og auka þannig möguleika.

Redsn0w 0.9.15b1 kemur með iOS 6 stuðningi, og einnig möguleika á að niðurfæra úr iOS 6 niður í iOS 5 (fyrir þá sem vistuðu svokölluð SHSH blobs).

UPPFÆRT: Nú er komið untethered jailbreak fyrir iOS 6.1.

Jailbreakið virkar fyrir tæki sem eru með A4 örgjörva eða eldri, sem þýðir að ekki er hægt að framkvæma jailbreak á iPhone 4S, iPad 2 eða nýjasta iPadinum (sem eru með A5 örgjörva og nýi iPadinn með A5X) eða iPhone 5 sem er með A6 örgjörva.

Jailbreak-ið sem er komið er svokallað tethered jailbreak, sem þýðir að ekki er hægt að endurræsa símann og halda jailbreak-inu nema þú tengir iPhone símann við tölvu, og notir RedSn0w til að kveikja á honum (velur Just Boot í RedSn0w ef rafhlaðan klárast hjá þér).

 

Jailbreak leiðarvísir fyrir iOS 6.0 [Redsn0w]

Skref 1: Náðu í iTunes 10.7 hér. Opnaðu síðan iTunes og taktu afrit af gögnunum þínum

Skref 2: Ef þú ert með opinn síma (eða iPod Touch), uppfærðu þá í iOS 6, annaðhvort beint úr tækinu eða með hjálp iTunes. (ATH ef þú reiðir þig á aflæsingu með hjálp Ultrasn0w, þá þarftu að uppfæra í iOS 6 með sérstökum hætti, sjá neðar)

Skref 3: Náðu í Redsn0w héðan [Mac útgáfa | Windows útgáfa]

Skref 4: Opnaðu Redsn0w. Ef þú ert á Windows þá þarftu að hægri smella á forritið og velja Run in Administrator mode. Einnig þarftu að halda inni Ctrl og smella á forritið ef þú ert með Mountain Lion, og velja þar Open úr valmyndinni sem birtist þá.

Redsn0w 0.915b1 - iOS 6

Skref 5: Eftir að þú opnar Redsn0w þá skaltu smella á Jailbreak, velja Cydia og fara í DFU mode (eða DFU ham ef við viljum vera alíslensk). Forritið gefur þér þá leiðbeiningar um hvernig þú ferð í DFU mode. Þegar forritið nemur að það hafi tekist þá byrjar Redsn0w að framkvæma jailbreak á tækinu. Að því búnu þá þarftu að velja “Autoboot this device when it connects in DFU mode“, sem gefur þér möguleika á að kveikja á tækinu með hjálp Redsn0w ef þú þarft að endurræsa símann (eða rafhlaðan klárast).

Eftir skamma stund þá mun tækið endurræsa sig, og Cydia ætti að birtast á heimaskjánum þínum, sem merki um árangursríkt jailbreak.

 

Uppfærsluleiðbeiningar fyrir aðila með aflæstan/krakkaðan síma

Ef þú ert með læstan síma, þ.e. þurftir að aflæsa honum með því að jailbreaka og setja upp viðbótina UltraSn0w (einkum á iPhone 3GS) eða kaupa sérstakt aflæsingarkort (einkum Gevey SIM) þá þarftu að uppfæra símann með sérstökum hætti, þ.e. að uppfæra símann án þess að uppfæra svokallað baseband á símanum.

Þú gerir það með því að ná í IPSW skrá fyrir tækið þitt [iPhone 3GSiPhone 4] opna Redsn0w, fara í Extras og velja þar Custom IPSW.  Veldu IPSW skrána sem þú náðir í fyrir stuttu síðan, og láttu Redsn0w búa til sérsniðna IPSW skrá fyrir tækið þitt. Þegar því er lokið, þá skaltu fara aftur í Extras og velja þar Pwned DFU. Fylgdu leiðbeiningum sem birtast á skjánum og framkvæmdu svo restore í iTunes með því að halda inni Shift (Windows) eða Alt (Mac) og smella á Restore takkann. Með því að halda inni þessum takka þá leyfir iTunes þér að velja hvaða IPSW skrá er hlaðið inn á tækið þitt, í staðinn fyrir að hala sjálfgefinni skrá beint af vefþjón Apple og setja upp á tækinu þínu.

Avatar photo
Author

Write A Comment