Tvær stærstu tónlistarveitur heimsins með áskriftarmódel eru nú í boði á Íslandi, en þjónusturnar sem um ræðir eru Spotify og Rdio.
Báðar þjónusturnar njóta mikilla vinsælda víða um heim, ekki síst vegna þess að þær bjóða notendum sínum upp á að vista lög og spila þau offline, þ.e. þegar notandinn er ekki nettengdur, en sá möguleiki hefur mikið að segja við val notenda á tónlistarþjónustum.
Spotify kynntu í gær í gær að tónlistarunnendur á Íslandi auk 6 annarra landa (þ.e. Mexíkó, Hong Kong, Singapúr, Eistland, Lettland og Litháen) geti nú nýtt sér þjónustu þeirra.
Samkvæmt vefmiðlinum The Verge þá er talið að áskriftaverðið muni vera minna á einhverjum þessara markaðssvæða með tilliti til kaupmáttar viðkomandi ríkja. Það virðist þó ekki vera tilfellið hjá okkur Íslendingum, en Spotify Unlimited kostar 4,99 evrur/mán og Spotify Premium 9,99 evrur/mán, en vestanhafs kosta þessar þjónustur 4,99 og 9,99 dollara/mán.
Á myndinni fyrir neðan má sjá hver munurinn er á þjónustu Spotify eftir því hvort maður er með Spotify Free, Spotify Unlimited eða Spotify Premium.
Í stuttu máli þá er munurinn þessi:
- Spotify Free: Ótakmörkuð spilun á tölvum með augýsingum. Hljómgæði laga 160kbps (160 kílóbit per sekúndu).
- Spotify Unlimited: Engar auglýsingar. Lög spiluð í betri hljómgæðum eða 320 kbps (320 kílóbit per sekúndu). Kostar 4,99 evrur á mánuði eða u.þ.b. 800 krónur miðað við núverandi kreditkortagengi.
- Spotify Premium: Möguleiki til að nota Spotify á snjalltækjum, og vista lög af lagalistum svo hægt sé að spila þau „offline“, þ.e. óháð því hvort nettenging sé til staðar. Kostar 9,99 evrur á mánuði eða u.þ.b. 1600 krónur miðað við núverandi kreditkortagengi.
Spotify kom á markað haustið 2008, og er með 24 milljón virka notendur. Fjórðungur þeirra greiðir fyrir þjónustuna með annaðhvort Unlimited eða Premium áskriftarleiðinni.
Spotify: Windows útgáfa | Mac útgáfa | iOS útgáfa | Android útgáfa | Windows Phone útgáfa
Nú leggst maður bara á bæn og vonar að Netflix komi næst, en þangað til er hægt að fylgja leiðarvísinum okkar til að nota Netflix á Íslandi.
5 Comments
Er þetta ekki samt erlent niðurhal? Þeir eru bara komnir með rétt til að selja aðgang hér en tónlistin er væntanlega ekki geymd á innlendum server. Getur einhver svarað þessu?
Jú það má leiða sterkar líkur að því að þetta sé allt erlent niðurhal.
Með Spotify Free þá er hver mínúta af hlustun rúmlega 1MB, þannig að ef maður hlustar á Spotify í eina klukkustund á dag, þá er það u.þ.b. 1,75GB af erlendu niðurhali á mánuði.
Takk fyrir þetta. Ég keypti strax premium, þetta er svo flott, þannig að þetta á eftir að vera eitthvað sem ég þarf að fylgjast með.
Spotify desktop client er með P2P kerfi byggt í sig svo þegar þú reynir að spila lag, client fyrst reynir að sækja lag frá oðrum Spotify notendum í kringum sig. Ef það finnst ekki þá sækir client lag beint frá okkar „storage“ kerfi.
getur einhver hjálpað mér? er með netflix í gegnum dns og nú get ég ekki notað spotify eftir 14 daga trial því það segir að landið sem ég er í match-i ekki prófílinn minn. Einhver?