http://youtu.be/_AirVOuTN_M
Ef þig langar að búa til hina fullkomnu Béarnaise sósu, marengs köku eða eitthvað annað skemmtilegt, þá getur komið til þess að þú þurfir að skilja nokkur egg og nota bara eggjarauðuna/-hvítuna.
http://youtu.be/_AirVOuTN_M
Ef þig langar að búa til hina fullkomnu Béarnaise sósu, marengs köku eða eitthvað annað skemmtilegt, þá getur komið til þess að þú þurfir að skilja nokkur egg og nota bara eggjarauðuna/-hvítuna.
Oft langar mann í eitthvað sætt með kaffinu en lendir þá í þeirri hvimleiðu stöðu að nákvæmlega ekkert gúmmelaði er til uppi í skáp.
Einhver úrræðagóður netverji leysti úr því einn góðan veðurdag með því að henda í eina brownie sem tekur ekki nema þrjár mínútur að gera (þrjár mínútur er kannski ýkjur en við lofum að þú verðir byrjaður að neyta kökunnar innan fimm mínútna frá því þú hefst handa við gerð hennar ef þú átt öll innihaldsefnin).
Það þekkja allir, flestir… ok einhverjir það vandamál að lána vini eða ættingja geisladisk, en finna svo ekki hulstur með. Í þeim tilfellum er oft um skrifaðan disk að ræða, eða geisladisk sem geymdur í glæsilegri Case Logic tösku eins og á myndinni að ofan.
Það vandamál er hægt að leysa með einföldum hætti, því ef þú ert með geisladisk og A4 blað, þá geturðu búið til geisladiskahulstur úr sjálfu blaðinu.
Ef frá er talið að skræla kartöflur, þá er afskurnun eggja með því leiðinlegra sem hægt er að gera í eldhúsinu.
Eins og með annað, þá eru til leiðir sem gera þessi verk bærilegri, og við ætlum að kynna tvö slík til sögunnar.
Flestir sem hita sólarhringsgamla pizzu gera það með eftirfarandi aðferð: Setja pizzusneið í örbylgjuofn, smella honum á 30-40 sekúndur og smella á Start. Útkoman er þá sneið sem er mýkri en hágæðabómull.
Ef þú átt egg sem þú manst ekki hvenær þú keyptir og vilt kanna hvort það sé í lagi með þau, þá er einföld leið til að kanna hvort það sé í lagi með þau.
Það nægir að setja eggin í vatn eins og eftirfarandi mynd sýnir, og staða eggjanna í vatninu segir til um hversu gömul þau eru.
Ef þú hefur einhvern tímann lent í þeirri vandræðalegu aðstöðu að bjóða upp á vín án þess að eiga upptakara, þá geturðu notað skóinn þinn í staðinn fyrir að stinga korktappanum niður í flöskuna og hella í gegnum sigti.
Í myndbandinu að neðan má sjá hvernig þetta er gert, og þú getur þá verið sannkallaður MacGyver ef þessi staða kemur upp. Myndbandið er á móðurmáli matarlistarinnar, en samt ætti það ekki að dyljast neinum hvernig þetta er framkvæmt.
Það getur verið þrautin þyngri að harðsjóða egg þannig að þau séu fullkomin. Nú er komin lausn sem gæti hjálpað þér við verkið, en það er með því að baka eggin í ofni.
Þegar maður vill fá kaldan drykk með sítrónu, þá er heldur leiðinlegt að setja bæði klaka og sítrónu í glasið ef ætlunin er að fá sér meira en tvo sopa í einu glasi. Hægt er að slá tvær flugur í einu höggi með því að skera annaðhvort súraldin (e. lime) eða sítrónu í litlar sneiðar og smella þeim inn í frysti. Færð þá bæði bragðbætinguna úr ávextinum, auk þess sem drykkurinn helst kaldur.
Ef þú ert í tímaþröng, átt ekki straujárn, eða vilt fara ótroðnar slóðir til að ná krumpum úr fatnaði, þá eru til nokkur ráð sem gætu komið þér til bjargar.
Að neðan koma fimm góð húsráð til að ná krumpum úr fatnaði, ef straujárn er ekki til staðar.